Þjófstörtuðu kjötsúpudeginum

Böðvar Guðjónsson frá KEX, Guðmundur Jörundsson, Stefán Úlfarsson frá Þremur …
Böðvar Guðjónsson frá KEX, Guðmundur Jörundsson, Stefán Úlfarsson frá Þremur frökkum og Gústav Axel Gunnlaugsson á Sjávargrillinu.

Matreiðslumenn við Skólavörðustíg eru í óða önn að undirbúa kjötsúpudaginn sem verður haldin hátíðlegur á laugardag, en þetta er árviss viðburður sem haldinn er á fyrsta vetradegi ár hvert.

Þetta er í tólfta sinn sem Samtök kaupmanna á Skólavörðustíg fagna vetrarkomu með þessum hætti og alls verða 1.000 lítrar af súpu á boðstólum fyrir gesti og gangandi, að því er segir í tilkynningu.

Í dag þjófstörtuðu menn og fengu sér aðeins að smakka og buðu gestum að bragða á súpunni. Þeir Gústav Axel Gunnlaugssson á Sjávargrillinu og Stefán Úlfarsson frá Þremur frökkum stilltu sér upp á Skólavörðustígnum til þess að minna gesti og gangandi á kjötsúpudaginn á laugardag. 

 Alls verður boðið upp á kjötsúpu á fimm stöðum á Skólavörðustígnum og það eru margir af fremstu matreiðslumönnum landsins sem gefa vinnu sína á þessum degi. Líkt og venjan hefur verið undanfarin ár mun Úlfar Eysteinsson ausa á fyrstu diskana fyrir fanga Hegningarhússins á Skólavörðustíg.

Dagskráin hefst kl. 14 og stendur fram til kl. 16. Boðið verður upp á fjölmörg skemmtatriði víðs vegar um Skólavörðustíg, meðal annars mun Steindór Andersen kvæðamaður flytja rímur í verslun Eggerts feldskera. Strax að loknum hátíðahöldum á Skólavörðustígnum verður keppt í hrútaþukli á veitingastaðnum KEX við Skúlagötu. Guðmundur Jörundsson fatahönnuður verður einn þeirra sem mun spreyta sig í KEXþuklinu, að því er fram kemur í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert