Allt við það sama í Holuhrauni

Eldgosið í Holuhrauni.
Eldgosið í Holuhrauni. mbl.is/RAX

Virkni eldgossins í Holuhrauni er með svipuðum hætti og undanfarna daga. Um sjötíu jarðskjálftar hafa mælst í Bárðarbungu síðasta sólarhringinn, þar af sjö sterkari en fjögur stig og 25 á bilinu 3-3,9 stig.

Ennfremur hafa 35 jarðskjálftar mælst suðaustur af Herðubreið, fjórir þeirra mældust sterkari en tvö stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert