Fundu fíkniefni í þremur bifreiðum

AFP

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti að hafa afskipti af þremur ökumönnum í nótt en allir voru þeir með fíkniefni á sér og undir áhrifum fíkniefna.

Rúmlega fimm í nótt voru höfð afskipti af ökumanni í kyrrstæðri bifreið með vélina í gangi. Fíkniefni fundust í bifreiðinni og neituðu bæði ökumaður og farþegi að eiga dópið. Þeir gista nú fangageymslur og verða yfirheyrðir síðar í dag. Í ljós kom að ökumaður var einnig réttindalaus við aksturinn.

Skömmu fyrir kl. 23:00 voru höfð afskipti af ökumanni í kyrrstæðri bifreið, reyndist hann vera með smáræði af ætluðum fíkniefnum í bifreiðinni. Málið var afgreitt á staðnum.

Rétt fyrir kl. 01:00 var ökumaður stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna en hann var látinn laus að lokinni blóðtöku. Við leit í bifreiðinni fundust ætluð fíkniefni og einnig fundust ætluð fíkniefni á farþega í bifreiðinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert