Hafa þungar áhyggjur af verkfalli

mbl.is/Kristinn

Framkvæmdastjóri lækninga á Landspítala hefur þungar áhyggjur af yfirvofandi verkfalli lækna, en hann vonast að viðsemjendur nái saman fyrir boðaðaðar verkfallsaðgerðir. Spítalinn býr sig undir að bregðast við áhrifum þeirra, en verkfall mun hafa áhrif á allar deildir.

Spítalinn segir í tilkynningu, að sjúklingar og þeir sem eigi bókuð viðtöl eða rannsóknir á Landspítala séu hvattir að fylgjast með framvindu verkfallsins. Falli niður bókaður tími vegna verkfalls verði fundinn nýr tími síðar. Á skurð- og aðgerðasviði má búast við að fresta þurfi aðgerðum og biðlistar lengist þar með.

„Verkfall Læknafélags Íslands hefst aðfaranótt mánudagsins 27. október verði ekki samið fyrir þann tíma. Verkfall Skurðlæknafélags Íslands hefst svo að morgni 4. nóvember, hafi ekki heldur samist. Þrátt fyrir verkfallsaðgerðirnar verður bráðatilfellum sinnt á Landspítala, enda hefur spítalinn undirbúðið undanþágulista lögum samkvæmt, sem ætlað er að tryggja öryggi sjúklinga. Aðgerðirnar ná til tiltekinna sviða boðaða verkfallsdaga og má sjá hvernig þeirra gætir á einstökum sviðum Landspítala í viðhengi,“ segir í tilkynningunni. 

Meginverkefnið að tryggja öryggi sjúklinga

Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri lækninga á Landspítala segist vona að viðsemjendur nái saman fyrir boðað verkfall, en að spítalinn búi sig undir að bregððast við verkfallsáhrifum. Meginverkefni spítalans er að tryggja öryggi sjúklinga eftir því sem kostur er.

„Við höfum þungar áhyggjur af yfirvofandi verkfalli lækna. Landspítali er ekki viðsemjandi þeirra, en áhrif verkfallsins munu að líkindum vega þyngst hér. Enda þótt bráðatilvikum verði sinnt og verkfall Læknafélags Íslands raðist ekki á sama tíma á öll klínísk svið spítalans er starfsemin svo samantvinnuð að búast má við áhrifum verkfalls út yfir það svið sem verkfallið nær formlega til. Sem dæmi má nefna að verkfall á Rannsóknarsviði hefur mikil áhrif á allar deildir spítalans sem reiða sig á þjónustu þess, t.d. vegna úrlestra á myndrannsóknum eða öðrum rannsóknum. Á skurð- og aðgerðasviði má búast við að fresta þurfi aðgerðum og biðlistar lengist þar með,“ segir Ólafur.

„Þá má nefna að verkfall lækna á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins gæti haft umtalsverð áhrif þar sem búast má við að einhverjir telji sig þurfa að leita til Bráðamóttökunnar. Það er ástæða til að hafa af því sérstakar áhyggjur þar sem álag og biðtími þar er nú þegar umtalsverður,“ segir hann ennfremur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert