Hálkublettir eru í Þrengslum og hálka eða hálkublettir víða í uppsveitum á Suðurlandi.
Á Vesturlandi og Vestfjörðum er hálka eða hálkublettir á flestum leiðum en þó er snjóþekja á Þröskuldum og á Hálfdán. Hálka og éljagangur er á Steingrímsfjarðarheiði og í Ísafjarðardjúpi.
Það er hálka eða snjóþekja á Norðurlandi og éljagangur mjög víða austan Blönduóss.
Á Austurlandi er hálka eða snjóþekja á vegum en greiðfært frá Djúpavogi og suður að Öræfasveit en þar taka við hálkublettir að Vík í Mýrdal.