Leikhús í Perlunni

Perlan.
Perlan. mbl.is/Ómar

Borgarráð samþykkti á síðasta fundi sínum að leigja Stúdentaleikhúsinu einn hitaveitutank Perlunnar undir sýningar til skamms tíma í einu.

Næsta sýning leikhússins, „Stundarfriður“ eftir Guðmund Steinsson, verður frumsýnd þar um miðjan nóvember og segir formaður Stúdentaleikhússins, Vilhelm Þór Da Silva Neto, húsnæðið henta mjög vel undir hana.

„Við erum mjög fegin að þetta var samþykkt,“ bætti hann við, enda ekki um auðugan garð að gresja í húsnæðismálum fyrir leikhópa.

laufey@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert