Lögreglan leitar Jónu Maggýar

Jóna Maggý Klemenzdóttir
Jóna Maggý Klemenzdóttir

Lög­regl­an á höfuðborg­ar­svæðinu lýs­ir eft­ir 14 ára stúlku, Jónu Maggý Klemenzdóttur, en síðast er vitað um ferðir henn­ar á fimmtudag. Hún er klædd í dökkbláa Cintamani úlpu, svartar þröngar íþróttabuxur og hvíta strigaskó. Talið er að hún sé á höfuðborgarsvæðinu eða á Selfossi.

Jóna er 175 sentímetrar á hæð og um 60 kíló að þyngd. Hún er mjög grönn, með blá augu og dökkbrúnt hár sem nær niður að mitti. Síðast sást til hennar yfirgefa skóla sinn síðastliðinn fimmtudag.

Þeir sem vita hvar hún heldur sig eða um ferðir hennar eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma : 444-1000.

Viðbót kl.11.00

Jóna Maggý er komin fram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert