Sjúkraþjálfarar styðja lækna

Sjúkraþjálfarar styðja kjarabaráttu lækna.
Sjúkraþjálfarar styðja kjarabaráttu lækna. Morgunblaðið/Eggert

Stjórn Félags sjúkraþjálfara lýsir yfir fullum stuðning við aðgerðir vegna kjarabaráttu Læknafélags Íslands og Skurðlæknafélags Íslands og tekur undir kröfur um nauðsyn þess að kjör háskólamenntaðra sérfræðinga verði samkeppnishæf við kjör í nágrannalöndunum.

Kemur þetta fram í yfirlýsingu sem Stjórn Félags sjúkraþjálfara hefur sent frá sér.

Þar segir einnig að stjórnin harmi þá stöðu sem uppi er í íslensku heilbrigðiskerfi, að grípa þurfi til harðra aðgerða til að knýja á um nauðsynlegar bætur á kjörum og aðstöðu heilbrigðisstétta.

Þá skorar stjórn Félags sjúkraþjálfara á fjármálaráðherra að ganga þegar í stað til samninga við lækna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert