18 hættu hjá 365 í gær

Ljósmynd/Heiðar Kristjánsson

Ásamt þeim tíu fastráðnu starfsmönnum sem sagt var upp hjá 365 í gær var átta verktökum jafnframt sagt upp samningum sínum. Þetta staðfestir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri 365, í samtali við mbl.is. Því hættu alls 18 manns hjá fjölmiðlafyrirtækinu í gær.

Að sögn Sævars voru fjórir eða fimm einstaklingar af þeim átta þáttagerðarmenn á útvarpsstöðvum 365.

Í gær var sagt frá því á Smartlandi að öllum verk­tök­um á út­varps­stöðinni X977 hefði verið sagt upp störf­um í gær. Þar á meðal Önnu Töru Andrés­dótt­ur og Katrínu Ásmunds­dótt­ur sem voru með þátt­inn Kyn­lega kvisti á miðvikudögum.

„Von­brigðin eru að sjálf­sögðu mik­il, næstu þátta­efni ákveðin og svona en við erum að íhuga fram­haldið og sjá hvernig hægt er að snúa sér í þessu,“ sagði Anna Tara í gær.

„Þetta eru mikil vonbrigði“

10 sagt upp hjá 365

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert