99-113% verðmunur á dekkjum

Það borgar sig að vanda valið á heilsársdekkjunum.
Það borgar sig að vanda valið á heilsársdekkjunum. mbl.is/Eyþór Árnason

Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðsamanburð á ódýrasta heilsársdekkinu sem 22 dekkjaverkstæði bjóða upp á. Könnunin var gerð þriðjudaginn 28. október. Í ljós kom að verðmunurinn er umtalsverður en ekki er lagt mat á gæði dekkjanna. Kannað var verð á 14", 15" og 16" dekkjum sem eru dekk fyrir smábíla og meðalbíla. Á 14" og 15" heilsársdekkjum reyndist MAX 1 dýrast en Dekkverk ódýrast.

Mestur verðmunur var á 16" sem var ódýrast á 11.990 kr. hjá Kvikkfix (Windforce) en dýrast á 25.551 kr. hjá Betra gripi (Firestone) sem er 13.561 kr. verðmunur eða 113%.

Minnstur verðmunur var á 15" sem var ódýrast á 9.975 kr. Dekkverk(Treea) en dýrast á 19.837 kr. hjá Max 1 (Nokia) sem er 9.862 kr. verðmunur eða 99%.

14" dekkið var ódýrast á 7.475 kr. hjá Dekkverk (Three-A) en dýrast á 15.685 kr. hjá Max 1 (Nokia) sem 8.210 kr. verðmunur eða 110%.

Kannað var verð 175/65R14, 195/65R15 og 205/55R16 hjá 22 dekkjaverkstæðum víðsvegar um landið. Verðkönnunin nær einungis til þeirra verkstæða sem selja heilsársdekk og ekki er tekið tillit til gæða. Hjá sumum dekkjaverkstæðunum var umfelgun innifalin í verði dekksins og ýmsir afslættir. Verðlagseftirlitið tekur fram að verðin sem eru uppgefin eru á einu stöku dekki.

Hér er aðeins um beinan verðsamanburð á þjónustu að ræða en ekki var lagt mat á gæði söluaðila. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert