Lið Fjarðabyggðar bar í kvöld sigur úr býtum í viðureign liðsins við Ásahrepp í spurningakeppninni Útsvar á RÚV.
Viðureignin var hnífjöfn en að lokum fór svo að lið Fjarðabyggðar hlaut 54 stig gegn 51 stig Ásahrepps. Er lið Fjarðabyggðar því komið áfram í næstu umferð á meðan Ásahreppur á enn möguleika þar sem fjögur stigahæstu tapliðin fara einnig áfram í næstu umferð og lið Ásahrepps er sem stendur á meðal þeirra.