Skil fara í dag norður yfir landið með samfelldri úrkomu og NA-stormi. Gera má ráð
fyrir hríðarveðri og skafrenningi, einkum á Þröskuldum og Steingrímsfjarðarheiði, en
almennt er hlýna í lofti og vindur gengur smámsaman niður um sunnan- og austanvert landið.
Vegir eru mikið auðir við Faxaflóa en hálka eða hálkublettir á flestum fjallvegum. Hálka eða krapi er á öllum helstu fjallvegum á Vestfjörðum. Krapi og óveður er á Hálfdán og Mikladal og hálkublettir og óveður á Klettshálsi.
Ófært er á Hrafnseyrarheiði og ekkert gert í dag sökum veðurs. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Dynjandiheiði. Þæfingsfærð er á leiðinni norður í Árneshrepp á Ströndum. Óveður er í Reykhólasveit.
Á Norðurlandi er sumstaðar hálka eða hálkublettir á vegum. Hálka og óveður er á Hófaskarði. Á Suðurlandi eru vegir greiðfærir.
Hálkublettir eru á fjallvegum á Austurlandi. Ófært á Vatnsskarði eystra. Autt er með suðausturströndinni.