Mun ekki hafa afskipti

Bjarni Benediktsson.
Bjarni Benediktsson. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, telur ekki ástæðu til viðbragða eða afskipta af sinni hálfu vegna frétta að undanförnu um Höllu Sigrúnu Hjartardóttur, stjórnarformann Fjármálaeftirlitsins, FME.

„Ég mun ekki hafa afskipti af þessu máli. Formaður stjórnar Fjármálaeftirlitsins hefur brugðist við þeirri umræðu sem átt hefur sér stað undanfarna daga og hún hyggst ekki sækjast eftir skipun í stjórnina að nýju. Ég tel því ekki ástæðu til afskipta af minni hálfu á þessu stigi,“ segir Bjarni í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert