Reyna að ráða niðurlögum maursins

Faraómaurinn lifir í samfélagi ótal maura, þar sem drottning ræður …
Faraómaurinn lifir í samfélagi ótal maura, þar sem drottning ræður ríkjum. En ólíkt flestum tegundum geta fleiri en ein drottning herskað í einu og sama búinu eða allt að 200 drottningar. Oftast eru 1.000 til 2.500 vinnumaurar í einstöku búi. Erling Ólafsson/af vef Náttúrufræðistofnunar

Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur og sóttvarnalækni hefur verið tilkynnt að vart hafi orðið við faraómaur í húsi 13 við Hringbraut. Skordýrið hefur að líkindum borist með varningi á Landspítala. Maursins hefur orðið vart á nokkrum stöðum í byggingunni. Aðgerðir til að ráða niðurlögum hans eru þegar hafnar í samráði við meindýraeyði Reykjavíkurborgar og verður meðal annars notað sérpantað eitur til verksins.

Meðal deilda í húsi 13 eru framleiðslueldhús Landspítala, trésmíðaverkstæði og heilbrigðistæknideild. Talsverðir flutningar eru því úr húsi 13 til annarra deilda og húsa Landspítala og hefur stjórnendum því verið gert viðvart um málið og þeir beðnir um að vera á varðbergi gagnvart þessu. „Mikilvægt er að ráða niðurlögum maursins þar sem hann getur verið smitberi og valdið skaða á meðferðartækjum.

Faraómaur er þekktur á Íslandi og var fyrsta staðfesta tilviksins vart 1980. Hans hefur þó ekki orðið vart á Landspítala áður. Maurinn þrífst vel í hita og raka og er aðstæðum á Landspítala þannig háttað að gera má ráð fyrir  að hann geti orðið erfiður viðureignar,“ segir á vef Landspítalans. 

Vefur Náttúrufræðistofnunar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert