WOWair stundvísast í október

Flugvél Wow air á Keflavíkurflugvelli.
Flugvél Wow air á Keflavíkurflugvelli.

Þegar stundvísi flugfélagana er skoðuð kemur í ljós að flugfélagið WOWair er stundvísast, með 93.3% brottfara og lendinga á réttum tíma. Í síðasta mánuði var það breska lággjaldaflugfélagið easyJet sem var stundvísast.

Reyndar er afar lítill munur á easyJet og WOWair, eða aðeins um 0.2%. easyJet er stundvísara í komuflugi en WOWair er stundvísara heilt yfir, segir í tilkynningu frá Dohop sem reikar út stundvísi flugfélganna sem fara um Keflavíkurflugvöll.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert