Ók á konu á bílastæði

mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

Ökumaður ók á konu á bifreiðastæði við verslun í Kópavogi síðdegis í gær. Bílnum var bakkað úr bifreiðastæði og á konu sem var á ferð fyrir aftan bílinn.

Konan datt og var bifreiðinni ekið yfir hægri rist konunnar. Konan flutt með sjúkrabifreið  á slysadeild til aðhlynningar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert