Sló lögreglumann í andlitið

Lögreglan við umferðareftirlit.
Lögreglan við umferðareftirlit. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Maður í mjög annarlegu ástandi sló lögreglumann í andlitið í miðborg Reykjavíkur í nótt. Maðurinn hafði verið í slagsmálum og fór ekki að fyrirmælum lögreglu á vettvangi.

Maðurinn var vistaður í fangageymslu þar til hægt verður að ræða við hann.

Lögreglan stöðvaði nokkra ökumenn sem grunaðir eru um akstur undir áhrifum fíkniefna. Þrír þessara manna höfðu verið sviptir ökuréttindum og höfðu því ekki leyfi til að aka bíl.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert