Erlendur ferðamaður var stöðvaður á Kringlumýrarbraut í dag á 117 km/klst þar sem hámarkshraði er 80 km/klst. Maðurinn var á leiðinni út á Keflavíkurflugvöll í flug.
Ökumaðurinn var færður á lögreglustöð þar sem hann gekk frá sektargreiðslu. Fékk hann svo að halda ferð sinni áfram að því loknu.