Allt tiltækt slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallaðu út síðdegis eftir að tilkynnt var um eld í skútu við Grandagarð.
Töluvert mikill eldur var í skútunni. Slökkviliðið sendi reykkafara um borð, en vel gekk að ná tökum á eldinum. Skemmdir á skútunni eru taldar vera miklar.