Í dag: flæði- og aðgerðasvið

Í dag og á morgun standa verkfallsaðgerðir yfir á flæðisviði …
Í dag og á morgun standa verkfallsaðgerðir yfir á flæðisviði og aðgerðasviði. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Í dag og á morgun, 24. og 25. nóvember, munu verkfallsaðgerðir lækna standa yfir á aðgerðasviði og flæðisviði Landspítala. Öllum bráðatilfellum verður sinnt en gera má ráð fyrir að verkfallið hafi áhrif á alla aðra starfsemi, að því er fram kemur á vefsvæði Landspítala.

Undir flæðisvið falla m.a. bráðamóttaka, endurhæfingardeildir og öldrunardeildir, en aðgerðasviði tilheyra m.a. gjörgæsla, skurðstofur, speglanir, svæfing og blóðbanki.

Samkvæmt tilkynningu á vef LSH verða áhrif á flæðissviði þessi helst:

  • Bráðatilvikum verður sinnt en biðtími á bráðamóttöku fyrir þá sem hafa minniháttar áverka eða veikindi gæti lengst.
  • Bókaðar endurkomur á bráða- og göngudeild falla niður.
  • Fimm daga deild á Landakoti verður lokuð.
  • Klínísk kennsla fellur niður.
  • Starfsemi á Grensási mun að mestu haldast óbreytt.

Áhrif á aðgerðasviði:

(Starfsemi bráðalegudeilda verður eins og um helgar. Öllum bráðatilvikum verður sinnt eins og venjulega þessa verkfallsdaga)

  • Starfsemi á skurðstofum og svæfingardeildum miðast við bráðastarfsemi.
  • Ekki verður hægt að undirbúa sjúklinga fyrir aðgerð á innskriftarmiðstöð (10E og B3) verkfallsdagana. Símainnskrift svæfingarhjúkrunarfræðinga verður í eðlilegum farvegi.
  • Blóðbanki mun afgreiða allar bráðabeiðnir um blóð og blóðhluta 24. og 25. nóvember.
  • Valrannsóknir sem þarfnast svæfinga dagana 24. og 25. nóvember falla niður.
  • Aðgerðir tannlækna þriðjudaga falla niður vegna verkfalls svæfingarlækna.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert