Skriður að komast á málið

Fundur stendur enn yfir í húskynnum Ríkissáttasemjara í kjaradeilu tónlistarkennara og er útlit fyrir að hann standi áfram inn í nóttina samkvæmt upplýsingum frá embættinu. Samningafundurinn hófst klukkan 13:00 í dag.

Verkfall tónlistarkennara hefur staðið í tæpar fimm vikur en samkvæmt upplýsingum mbl.is eru vísbendingar um að skriður sé að koma á málið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert