Vetrarfærð á Vestfjörðum

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Hálka er á Hellisheiði, Sandskeiði og í Þrengslum samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Ennfremur er snjóþekja á Mosfellsheiði, en annars er greiðfært á Suður og Suðausturlandi.

Hálka og éljagangur er sömuleiðis á Holtavörðuheiði og hálkublettir á Bröttubrekku. Hálkublettir eru að sama skapi nokkuð víða á norðanverðu landinu.

Þæfingsfærð og skafrenningur er á Hrafnseyrarheiði á Vestfjörðum en snjóþekja og éljagangur á  Dynjandisheiði, Trostansfirði og á Kleifaheiði. Hálka og éljagangur er á Steingrímsfjarðarheiði, Hálfdán og Mikladal.

Þá er hálka á Fjarðarheiði fyrir austan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert