Bjarni velji hæfasta einstaklinginn

Valhöll, höfuðstöðvar Sjálftsæðisflokksins.
Valhöll, höfuðstöðvar Sjálftsæðisflokksins. mbl.is/RAX

Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, telur að velja eigi hæfasta einstaklinginn í embætti innanríkisráðherra, en ekki hæfasta Sunnlendinginn eða hæfustu konuna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Heimdalli.

Því er Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, hvattur til að velja hæfasta einstaklinginn í embætti innanríkisráðherra án tillits til kyns, búsetu eða annarra þátta sem hafa engin áhrif á hæfi fólks. Einstaklingar eiga að vera metnir að eigin verðleikum, en ekki á grundvelli eiginleika sem þeir hafa enga stjórn á.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert