Snjóþekja og éljagangur er á Sandskeiði og Hellisheiði en hálkublettir og éljagangur í Þrengslum. Snjóþekja og éljagangur er á Mosfells- og Lyngdalsheiði. Hálkublettir eða snjóþekja er á flestum leiðum á Suðurlandi.
Á Vesturlandi er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á flestum leiðum. Hálka er á Holtavörðuheiði og Vatnaleið en snjóþekja og snjókoma á Bröttubrekku, samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni.
Snjóþekja og skafrenningur er á Steingrímsfjarðarheiði en snjóþekja á Þröskuldum, Kleifaheiði, Hálfdáni, og Mikladal. Hálka eða hálkublettir eru á öðrum leiðum á Vestfjörðum. Ekki eru komnar upplýsingar um færð á Hrafnseyrarheiði en krapasnjór er á Dynjandisheiði.
Á Norðurlandi vestra er greiðfært, þó er hálka eða hálkublettir í Húnavatnssýslum og hálka á Vatnsskarði en á Norðurlandi eystra eru hálkubletti inn til landsins en greiðært með ströndinni.
Á Austurlandi er hálka á Fjarðarheiði en hálkublettir á Fagradal og á Öxi en annars að mestu greiðfært. Einnig er að mestu greiðfært með suðurströndin en hálkublettir eða krapi í Öræfasveit.