Kærir sextugan karlmann fyrir kynferðisbrot

Tæplega tvítug kona hefur kært karlmann á sextugsaldri til lögreglunnar á Akureyri fyrir kynferðisbrot. Talið er að brotið hafi átt sér stað á hóteli á Norðurlandi aðfaranótt sunnudags. Kæran barst á sunnudag.

Nokkrir hafa verið yfirheyrðir vegna málsins og er rannsókn í fullum gangi að sögn lögreglu. Búið er að taka skýrslu af stúlkunni og manninum sem og vitnum. Stúlkunni hefur verið skipaður réttargæslumaður vegna málsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert