Vetrarfærð víðast hvar á landinu

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Hálkublettir eru á Sandskeiði og Hellisheiði samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni og hálka í Þrengslum. Hálka eða hálkublettir eru sömuleiðis á flestum leiðum á Suðurlandi.

Vestanlands er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á flestum leiðum. Hálka eða hálkublettir eru að sama skapi á flestum leiðum á Vestfjörðum. Greiðfært er á Norðurlandi vestra en þó er hálka eða hálkublettir í Húnavatnssýslum og hálka á Vatnsskarði. Á Norðurlandi eystra eru hálkublettir inn til landsins en greiðfært með ströndinni.

Á Austurlandi er hálka á Fjarðarheiði en hálkublettir á Fagradal og á Öxi en annars að mestu greiðfært. Einnig er hálka að mestu með suðurströndinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert