Ferðamenn fóru út af í hálku

mbl.is/Hjörtur

Bílvelta varð á Hrútafjarðarhálsi í Vestur-Húnavatnssýslu á þriðja tímanum í dag. Þrjú voru í bifreiðinni þegar hún valt í hálku. Allt erlendir ferðamenn.

Kona í hópnum var flutt til Reykjavíkur í sjúkrabifreið en að sögn lögreglunnar var hún ekki alvarlega slösuð. Hinir fengu einnig far með bifreiðinni til höfuðborgarinnar.

Bifreiðin er gjörónýt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert