Hlaut styrk úr Líknar- og hjálparsjóði

Kristinn Freyr með Benedikt Lund og Gissuri Guðmundssyni frá Líknar- …
Kristinn Freyr með Benedikt Lund og Gissuri Guðmundssyni frá Líknar- og hjálparsjóðnum, ásamt Ásdísi Haraldsdóttur lögreglumanni, en hún er stjúpsystir Kristins Freys. Ljósmynd/Lögreglan

Landssamband lögreglumanna hefur fært Kristni Frey Þórssyni og fjölskyldu hans styrk, en peningarnir koma úr Líknar- og hjálparsjóði Landssambandsins. Kristinn Freyr, sem er þrítugur sjómaður, missti konuna sína, Ólöfu Birnu Kristínardóttur, 32 ára, í byrjun september, en hún var með hormónatengdan sjúkdóm. Dætur þeirra eru Kristín Helga, 3 ára, og Ólöf Erla, 1 árs.

Lögreglumenn greiða í sjóðinn mánaðarlega, en þeir selja líka merki og kort í fjáröflunarskyni. Sjóðurinn var stofnaður árið 1992 og samtals hafa á annað hundrað aðilar, bæði einstaklingar og ýmiss samtök, notið góðs af og sannarlega hefur styrkur úr sjóðnum komið þeim öllum vel enda aðstæður hjá fólki oft mjög erfiðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert