Landvernd mótmælir tillögu Jóns

Langisjór.
Langisjór. Rax / Ragnar Axelsson

Stjórn Landverndar mótmælir harðlega framkominni tillögu Jóns Gunnarssonar, formanns atvinnuveganefndar Alþingis, um að færa átta virkjanahugmyndir úr biðflokki í nýtingarflokk rammaáætlunar. Stjórnin heldur því fram að fimm af þessum hugmyndum hafi ekki hlotið þá málsmeðferð sem lög mæla fyrir um og feli í sér alvarlegt rof á tilraun til sátta um orkunýtingu í landinu.

Þá sé tillagan brot á grundvallarmarkmiði rammaáætlunarlaganna um að nýting byggist á langtímasjónarmiðum og heildstæðu hagsmunamati. Verði tillagan samþykkt er rammaáætlunarferlið ónýtt.

Stjórn Landverndar bendir á að tillaga atvinnuveganefndar virðist vera í andstöðu við málsmeðferðarreglur rammaáætlunarlaga. Lögin kveði á um skýrt verklag. „Í fyrsta lagi er það umhverfisráðherra sem með lögunum er falið að leggja tillögur um flokkun virkjanahugmynda fyrir Alþingi. Í þessu máli hefur það ekki verið gert nema um þrjár hugmyndir í neðrihluta Þjórsár. Í öðru lagi verður ráðherra að byggja tillögur sínar á mati verkefnisstjórnar rammaáætlunar um rökstudda flokkun virkjunarhugmynda, að teknu tilliti til umsagna almennings og hagsmunaaðila. Fimm af átta virkjunarhugmyndum sem atvinnuveganefnd leggur til að færa í nýtingarflokk hafa hinsvegar ekki fengið þessa faglegu umfjöllun. Í þriðja lagi hefur engin átta hugmyndanna verið metin með stigagjöf af faghópum verkefnisstjórnar, en það er hinn lögmæti undanfari mats verkefnisstjórnar.“

Stjórn Landverndar segir á að verði tillagan samþykkt og verklag atvinnuveganefndar reynist í ósamræmi við lög, verði allar ákvarðanir sem byggja á samþykktinni jafnframt ólögmætar og að engu hafandi.

Frétt mbl.is: Umræðan á villigötum

Frétt mbl.is: Þessar virkjanir færu í nýtingarflokk

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert