Umræða um virkjanir á villigötum

Jón Gunnarsson alþingismaður.
Jón Gunnarsson alþingismaður. Morgunblaðið/Sigurður Jökull

Jón Gunnarsson, formaður atvinnuveganefndar, segir misskilnings gæta í viðbrögðum við breytingatillögu hans og meirihluta nefndarinnar um að sjö virkjanir skuli fara ásamt Hvammsvirkjun í nýtingarflokk. Jón lagði tillöguna fram í morgun. Hann segir hana ekkert hafa með ákvörðun um að virkja að gera.

Eins og mbl.is hefur sagt frá er um að ræða Hvammsvirkjun, Há­göngu­lón I og II, Skrok­köldu­virkj­un, Hólmsá við Atley, Haga­vatns­virkj­un, Urriðafoss­virkj­un og Holta­virkj­un.

Þrjár virkjanirnar eru í Þjórsá; Hvammsvirkjun, Holtavirkjun og Urriðafossvirkjun.

Jón segir aðspurður það liggja fyrir í áætlun Landsvirkjunar að hefjast skuli fyrst handa við Hvammsvirkjun, sem sé efst í Þjórsá, og láta reyna á mótvægisaðgerðir gagnvart laxastofninum í Þjórsá.

Ferlið getur tekið nokkur ár

Spurður hvenær áformað sé að hefja uppbyggingu umræddra virkjana segir Jón að borið hafi á misskilningi í umræðunni.

„Það er ríkjandi misskilningur varðandi rammaáætlun. Það að setja virkjanir í nýtingarflokk hefur ekkert með þá ákvörðun að gera að þar verði virkjað. Þegar virkjanakostur fer í nýtingarflokk á eftir að fara í allt umhverfismat þeirra framkvæmda sem tilheyra hverri virkjun. Þannig að það er mikil vinna framundan. Umhverfismat getur tekið langan tíma, jafnvel nokkur ár,“ segir Jón Gunnarsson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert