Fólk geri ráðstafanir vegna veðurspár

Ljósmynd/tók Sigurður Ó. Sigurðsson/Landsbjörg

Veðurstofan hefur vakið athygli á spá um illviðri víða um land næstu daga. Er ljóst að vonskuveðurs er að vænta síðdegis á sunnudaginn og fram á mánudag og mjög slæmt ferðaveður.

Af því tilefni vill Slysavarnafélagið Landsbjörg brýna fyrir fólki að gera ráðstafanir svo hægt sé að koma í veg fyrir tjón og óþægindi er vilja fylgja slíkum veðurofsa.

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar verða í viðbragðsstöðu um land allt meðan veðrið gengur yfir. Þurfi fólk á aðstoð þeirra að halda má hringja í Neyðarlínuna – 112 eftir hjálp.

Hér fyrir neðan er að finna góð ráð fyrir almenning varðandi undirbúning fyrir óveður í líkingu við það sem von er á.

Þegar sterkur vindur gengur yfir skapast mesta hættan þegar lausir hlutir fjúka. Því er mikilvægt gæta þess að festa þá vel og tryggilega eða koma þeim fyrir innandyra. 

Við flest íbúðarhús er um að ræða hluti í garði og á svölum, svo sem garðhúsgögn, grill, hitara og trampólín. Fari þessir hlutir af stað er hætta á að þeir lendi á rúðum og brjóti þær eða skemmi bifreiðar.

Fullvissið ykkur öllum gluggum og dyrum sé vel lokað. Brotni rúða skal heimilisfólk yfirgefa herbergið, loka dyrum og hringja eftir aðstoð björgunarsveita í síma Neyðarlínunnar -112.

Gangið úr skugga um að þakplötur séu tryggilega festar, einnig þakrennur, grindverk og annað. Húsbyggjendur ættu að sýna sérstaka varkárni í þeim efnum.

Tryggið að hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagnar og dráttarkerrur séu í skjóli við ríkjandi vindátt og að kyrfilega sé gengið frá þeim.

Séu varúðarráðstafanir gerðar aukast líkur á að þessi djúpa lægð fari yfir landið án þess að skapa teljandi vandkvæði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert