Fyrsta stelpan til að vinna Rímnaflæði

Sigga Ey bar sigur úr býtum í Rímnaflæði í kvöld, …
Sigga Ey bar sigur úr býtum í Rímnaflæði í kvöld, fyrst stúlkna.

Sigríður Eydís Gísladóttir varð í kvöld fyrsta stelpan til að vinna rappkeppnina Rímnaflæði sem fór fram á vegum Samféss, samtaka félagsmiðstöðva á Íslandi, í félagsmiðstöðunni Hundrað og ellefu í Breiðholti í kvöld. Listamannanafn Sigríðar er Sigga Ey en hún sigraði með lag sitt „Hrátt kjöt“.

Ungir og efnilegir rapparar úr félagsmiðstöðvum hvaðan af landinu spreyttu sig í keppninni í kvöld en enginn þeirra toppaði hina fimmtán ára gömlu Siggu Ey. Hún keppti fyrir hönd félagsmiðstöðvarinnar Fjörheima í Reykjanesbæ.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert