RÚV tapaði minna en búist var við

Útvarpshúsið í Efstaleiti.
Útvarpshúsið í Efstaleiti. mbl.is/Ómar Óskarsson

Tap Ríkisútvarpsins var minna á síðasta rekstrarári þess en gert var ráð fyrir. Tapið fyrir tekjuskatt nam 339 milljónum króna en gert hafði verið ráð fyrir 357 milljóna tapi. Eftir skatta nam tapið 271 milljónum króna. Þetta kemur fram í ársreikningi RÚV sem birtur var í kvöld.

Á rekstrarárinu 1. september 2013 til 31. ágúst 2014 var 271 m.kr. tap af rekstri Ríkisútvarpsins ohf. eftir skatta. Tap af rekstri félagsins fyrir tekjuskatt var 339 m.kr. í stað 357 m.kr. taps sem gert var ráð fyrir í endurskoðaðri rekstraráætlun sem kynnt var í mars, að því er kemur fram í tilkynningu frá RÚV.

Þar af var tap á fyrri hluta rekstrarársins 274 m.kr. fyrir tekjuskatt, en tap á síðari hluta rekstrarársins var um 65 m.kr. í stað 83 m.kr. sem áætlað hafði verið. Afkoma á síðari hluta rekstrarársins er því 20% betri en gert var ráð fyrir í rekstraráætlun. Hagnaður RÚV fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) var 303 m.kr. á rekstrarárinu, þar af 278 m.kr. á seinni hluta rekstrarársins.

Einkenndist af sviptingum

Rekstrarárið 2013-2014 er sagt í tilkynningunni hafa einkennst af umtalsverðum sviptingum í rekstri Ríkisútvarpsins. Haustið 2013 var fallið frá því að RÚV fengi útvarpsgjaldið óskert sem leiddi til umtalsverðrar lækkunar á væntum þjónustutekjum ársins 2014. Þetta leiddi til umtalsverðs niðurskurðar og umróts í nóvember og desember 2013. Ný lög um Ríkisútvarpið tóku gildi 1. janúar 2014 sem m.a. takmörkuðu sölu auglýsinga og kostunar. Þrír útvarpsstjórar störfuðu á árinu, Páll Magnússon til 18. desember 2013, Bjarni Guðmundsson 19. desember 2013-9. mars 2014 og Magnús Geir Þórðarson frá 10. mars 2014. Nýtt skipurit tók gildi í maí 2014 og á sama tíma tók ný framkvæmdastjórn til starfa þar sem fækkað var um einn í framkvæmdastjórn. Umtalsverðar breytingar voru gerðar á skipulagi félagsins sumarið 2014, undirbúningur var hafinn fyrir sölu lóðar og möguleikar á sölu fasteigna félagsins skoðaðir.

Þær margvíslegu hagræðingar- og niðurskurðaraðgerðir sem gripið var til á rekstrarárinu koma ekki að fullu fram í rekstrarniðurstöðu ársins. Aðgerðirnar byrjuðu að skila sér á síðari hluta rekstrarársins, og verða enn sýnilegri í afkomu af rekstrinum á næstu misserum. Áætlanir næsta rekstrarárs gera ráð fyrir um 200 m.kr. raunlækkun rekstrarkostnaðar.

Tekjur ársins hækkuðu um 1% milli ára og er því um raunlækkun að ræða. Þjónustutekjur voru 3.317 m.kr. og tekjur af auglýsingum og öðru voru 2.082 m.kr. en það síðarnefnda lækkar um 4,7% á milli ára. Helstu ástæðurnar fyrir lækkun auglýsingatekna eru ný lög sem takmarka möguleika RÚV á sölu auglýsinga og kostunar auk þess sem almennur samdráttur var á auglýsingamarkaði á seinni hluta rekstrarárs.

Með 242 fastráðna starfsmenn

Launakostnaður á rekstrarárinu var 2.278 m.kr. en var 2.200 m.kr. á rekstrarárinu á undan. Hækkun á launakostnaði skýrist af kjarasamningshækkunum, kostnaði vegna stjórnendaskipta og breytinga á lífeyrisskuldbindingum, samtals um 130 m.kr. Launakostnaður fer lækkandi þar sem starfsmönnum hefur fækkað á árinu. Heildarfjöldi stöðugilda við upphaf rekstrarársins, í september 2013, var 297 en 270 í lok rekstarársins í ágúst 2014.  Fjöldi stöðugilda í lok október 2014 var 254, þar af eru 242 stöðugildi fastráðinna starfsmanna og 12 stöðugildi tímavinnumanna. 

Unnið að nýjum samningi við ráðuneytið

Stjórn RÚV hefur vakið athygli á því að fjárhagsstaða RÚV sé erfið og vandinn tvíþættur. Í fyrsta lagi sé félagið yfirskuldsett eins og staðfest var í sjálfstæðri úttekt sem PwC vann fyrir stjórn á fjárhag félagsins í vor. Stjórn félagsins hefur unnið að lausn vandans, m.a. með undirbúningi að sölu eigna til að létta á skuldum. Hafin er vinna með Reykjavíkurborg við skipulag lóðar félagsins við Efstaleiti til að hægt verði að selja lóðina og unnið er að útfærslu á mögulegri sölu á fasteign félagsins.

Unnið er að nýjum samningi við mennta- og menningarmálaráðuneytið með það að markmiði að samræmi verði á milli tekna og þess rekstrarkostnaðar sem fellur á félagið við að standa undir þeirri þjónustu sem samningurinn felur í sér. Stjórn RÚV hefur óskað eftir því að félagið fái útvarpsgjaldið óskert og fallið verði frá hugmyndum um að lækka útvarpsgjaldið frá því sem nú er, segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert