Smábátaeigendur leita til umboðsmanns Alþingis

Smábátaeigendur eru ósáttir við ákvörðun sjávarútvegsráðherra og ætla að leita …
Smábátaeigendur eru ósáttir við ákvörðun sjávarútvegsráðherra og ætla að leita til umboðsmanns Alþingis. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Landssamband smábátaeigenda hefur kvartað til umboðsmanns Alþingis yfir ákvörðun sjávarútvegsráðherra að skerða afla til línuívilnunar í ýsu og steinbít. Sambandið telur sig knúið til að leita til umboðsmanns þar sem ráðherra hafi ekki orðið við beiðni um óbreyttan afla milli ára.

Í frétt á vef Landssambands smábátaeigenda (LS) kemur fram að nærri þrír mánuðir séu liðnir frá því að sambandið óskaði eftir því við Sigurð Inga Jóhannsson, sjávarútvegsráðherra, að hann drægi til baka ákvörðun sína um að minnka ýsuafla til línuívilnunar um 1.000 tonn og steinbít um 200 tonn. Með ákvörðun sinni telur LS að ráðherra hafi virt að vettugi skilyrði sem atvinnuveganefnd setti við samþykkt breytingartillögu við frumvarp hans, um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða, 16. maí sl.

Í rökstuðningi með kvörtuninni bendir LS á að í nefndaráliti atvinnuveganefndar Alþingis var eftirfarandi tekið fram: „Engin meiri háttar breyting er fyrirhuguð um nýtingu á svonefndum pottum á komandi fikveiðiári, en stefnt er að því að áætlun um nýtingu þeirra til lengri tíma verði lögð fram á löggjafarþingi 2014-2015.“

Alþingi hafi samþykkt breytingartillögu atvinnuveganefndar með áðurnefndri skýringu. Þar sem ráðherra hafi ekki orðið við beiðni LS um að ýsu- og steinbitsafli til línuívilnunar verði óbreyttur milli ára hafi félagið séð sig knúið til að leita til umboðsmanns Alþingis með málið.  

Frétt á vef Landssambands smábátaeigenda

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert