Vestur-íslenskur þingmaður með í för

John Baird, utanríkisráðherra Kanada, Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra og Janis …
John Baird, utanríkisráðherra Kanada, Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra og Janis Gudrun Johnson öldungadeildarþingmaður. Ljósmynd/Utanríkisráðuneytið

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra og John Baird, utanríkisráðherra Kanada funduðu í Ráðherrabústaðnu í Reykjavík í dag en kanadíski ráðherrann er hér á landi í opinberri heimsókn.

Fram kemur í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu að ráðherrarnir ýmis mál, m.a. áhuga á auknum viðskiptum landanna og áætlanir um útvíkkun á fríverslunarsamningi EFTA og Kanda, svo að hann nái til fleiri sviða en vöruviðskipta, s.s. þjónustuviðskipta, fjárfestinga, verndunar hugverkaréttinda og opinberra innkaupa. Sömuleiðis ræddu þeir möguleika á að gera samning á milli landanna um að greiða fyrir heimildum ungs fólks til ferða og atvinnu á milli ríkjanna.

„Ráðherrarnir ræddu samstarf í öryggis- og varnarmálum, en kanadíski flugherinn hefur í tvígang tekið þátt í loftrýmisgæslu á Íslandi og er áframhald á þeirri þátttöku nú í undirbúningi. Þá ræddu þeir öryggishorfur í Evrópu, m.a. í tengslum við ástandið í Úkraínu og uppgang hryðjuverkasantakanna ISIS. Þá ræddu þeir þróun á norðurslóðum, mikilvægt samstarf Íslands og Kanada á því sviði og undirbúning ráðherrafundar Norðurskautsráðsins sem haldinn verður í Iqaluit í Kanada í apríl 2015.“

Þá segir að Gunnar Bragi hafi sérstaklega gert að umtalsefni þann mikla fjölda Íslendinga sem fluttist til Kanada í lok 19 aldar og sterkum tengslum þeirra við Ísland. „Hann sagði íslensk stjórnvöld leggja áherslu á að rækta þessi tengsl, sem myndu vonandi nýtast í öðrum samskiptum landanna, bæði menningarlega, í viðskiptum, norðurslóðamálum og öðrum alþjóðamálum en einn afkomandi Vesturfaranna, öldungardeildarþingmaðurinn Janis Gudrun Johnson frá Manitoba, var með í föruneyti Baird.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert