Vegir auðir víðast hvar

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Vegir eru að heita má auðir á Suður- og Vesturlandi samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Hálkublettir eru á Holtavörðuheiði.

Mikið er autt á vegum á láglendi á Vestfjörðum en víða nokkur hálka á fjallvegum.

Vegir eru auðir á Norðurlandi vestra en hálkublettir eru enn á nokkrum vegum á Norðurlandi eystra og Austurlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert