Auglýsa eftir vitnum að umferðaróhappi

Mynd af vettvangi umferðaróhappsins.
Mynd af vettvangi umferðaróhappsins. ljósmynd/arekstur.is

Árekstur.is auglýsir eftir vitnum að óhappi sem átti sér stað á  gatnamótum Suðurlandsbrautar og Grensásvegar mánudaginn 15. desember síðastliðinnum klukkan 15:00.

Tvær bifreiðar rákust saman á gatnamótunum en  annarri þeirra var ekið austur Suðurlandsbraut en hinni norður Grensásveg.

Þeir sem urðu vitni að árekstrinum og geta veitt upplýsingar um stöðu umferðarljósanna þegar áreksturinn varð eru beðnir um að hafa samband við starfsmenn Árekstur.is í síma 578-9090.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert