Getur ekki greitt 190 milljónir

Útvarpshúsið í Efstaleiti.
Útvarpshúsið í Efstaleiti. mbl.is/Ómar

Samkomulag hefur náðst á milli stjórnar Ríkisútvarpsins og Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins um frest á greiðslu skuldabréfs til 31. mars á næsta ári. Erfið fjárhagsstaða RÚV veldur því að ekki er bolmagn til að greiða afborgunina, sem er að upphæð 190 milljónir kr.

Þetta kemur fram í tilkynningu sem Ríkisútvarpið hefur sent til Kauphallar Íslands. Þann 1. október var tilkynnt um að samkomulag hefði náðst um frest á greiðslu skuldabréfsins, sem er í eigu lífeyrissjóðsins, til 31. desember nk.

„Þar að auki er samkomulag um að kröfuhafar beiti ekki vanefndaúrræðum af þessu tilefni og að ekki verði gengið að eignum félagsins á þessu tímabili.  Frestunin mun því ekki hafa áhrif á kjör skuldabréfsins og mun sú fjárhæð sem frestast bera sömu kjör og skuldabréfið þennan tíma og ekki hafa í för með sér kostnað í formi dráttarvaxta eða vanskilagjalda,“ segir í tilkynningunni.

Ætla hefja formlegt sölu- og skipulagsferli lóðarinnar að Efstaleiti 1

Þá kemur fram, að stjórn RÚV vinni nú að undirbúningi á sölu eigna félagsins með það að markmiði að minnka skuldsetningu félagsins.

„Stjórn RÚV tók ákvörðun á stjórnarfundi sínum þann 18. desember 2014 að hefja formlegt sölu- og skipulagsferli lóðarinnar að Efstaleiti 1 en borgarráð samþykkti á fundi í október að hefja vinnu með RÚV með það að markmiði að endurskipuleggja svæðið, m.a. fyrir íbúðabyggð.

Ríkisútvarpið hefur jafnframt til skoðunar frekari aðgerðir til þess að tryggja rekstrarhæfi félagsins,   þ. á m. hugsanlega sölu Útvarpshússins, og mun vinna að þeim aðgerðum í samráði við stjórnvöld,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert