Læknar funduðu í fimm tíma

Læknar að störfum.
Læknar að störfum. Ásdís Ásgeirsdóttir

Fundað var í kjaradeilu lækna í fimm klukkustundir í húsi ríkissáttasemjara í dag, en honum var slitið um þrjúleytið. Þetta staðfestir Þorbjörn Jónsson, formaður Læknafélags Íslands, sem vildi að öðru leyti ekki tjá sig um stöðu viðræðnanna eða umræðuefni fundarins. Fundað verður aftur á morgun klukkan 11. 

Í samtali við mbl.is í gær sagði Þorbjörn að samninganefnd lækna hafi lagt fram nýjan flöt á eldri hugmynd á fundi á þriðjudaginn. 

Verkfallsaðgerðir lækna hófust 27. október og haldnir hafa verið rúmlega þrjátíu fundir í kjaradeilunni.

At­kvæðagreiðslu LÍ um verk­falls­boðun lækna fyrstu þrjá mánuði árs­ins 2015 lauk fyrr í mánuðinum en um 98% þeirra sem kusu samþykktu fyr­ir­hugaðar verk­fallsaðgerðir. Gert er ráð fyr­ir að þær hefj­ist þann 5. janú­ar næst­kom­andi ef samn­ing­ar hafa ekki náðst fyr­ir þann tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert