Búið að opna Súðavíkurhlíð

Það er vetrarlegt á Ísafirði
Það er vetrarlegt á Ísafirði mbl.is/BB.Sigurjon J. Sigurdsson

Vegurinn um Súðavíkurhlíð er opinn en þar er enn snjóflóðahætta og vegfarendur eru beðnir um að vera ekki á ferð að nauðsynjalausu, að því er segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Það er hálka og snjóþekja á flestum vegum á Suðurlandi en hálkublettir og hálka á Suðvesturlandi, hálkublettir eru Reykjanesi. Suðurstrandarvegur er þungfær.

Snjóþekja eða hálka er einnig á flestum vegum á Vesturlandi en þungfært er um Bröttubrekku.

Á Vestfjörðum er hálka eða snjóþekja. Þungfært er á Þröskuldum. Þæfingur er á Steingrímsfjarðarheiði og í Ögur en þungfært þaðan í Súðavík. Þæfingur er á Ennishálsi í Bitrufjörð. Þungfært er úr Bjarnarfirði og norður í Gjögur.

Snjóþekja eða hálka er á Norðurlandi og víða nokkur éljagangur.

Á Austur- og Suðausturlandi er hálka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert