Vann 13 milljónir rétt fyrir jólin

Einhver heppinn á Íslandi hlaut 13 milljónir í vinning í …
Einhver heppinn á Íslandi hlaut 13 milljónir í vinning í kvöld.

Einn vinningshafi á Íslandi vann rúmlega þrettán milljónir í Eurojackpot útdrætti kvöldsins. Hann var einn af fjórum vinningshöfum í sem fengu þriðja vinning.

Væntanlega mun þetta koma sér vel svona rétt fyrir jólin, en auk þess var einn vinningshafi sem fékk eina milljón á jókermiða.

Fyrsti vinningur í Eurojackpot var tæplega 2,2 milljarðar, en gekk ekki út í þetta skiptið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert