Varað við vatnselg á morgun

Gera má ráð fyrir að vatnselgur geti orðið nokkur á …
Gera má ráð fyrir að vatnselgur geti orðið nokkur á götum. mbl.is/Jakob Fannar

„Þótt hann flokkist ekki undir það sem kallast asahláka verður engu að síður talsvert leysingavatn á ferðinni enda bráðnar nýfallni snjórinn auðveldlega þegar hlánar,“ segir Einar Sveinbjörnsson hjá Veðurvaktinni um skil sem fara yfir landið á morgun. Gera má ráð fyrir að vatnselgur geti orðið nokkur á götum.

Blotinn gengur hratt yfir, byrjar með skammvinnu hríðarkófi suðvestanlands í fyrramálið, en fljótlega upp úr hádegi hlánar og síðdegis er spáð 5 til 6 stiga hita á láglendi sunnan og vestanlands. Aðra nótt kólnar síðan aftur niður undir frostmark.

Eftir ofankomuna undanfarið er nóg af snjó og víða klaki undir og hvetur tryggingafélagið VÍS húseigendur, sér í lagi á suður og vesturlandi, til að gæta vel að niðurföllum fyrir morgundaginn og tryggja að vatn eigi greiða leið að þeim. Einnig að moka snjó af svölum og frá húsveggjum til að minnka líkur á leka. Tjón þar sem vatn kemur inn að utan er oft ekki bótaskylt og þá situr fólk sjálft uppi með það.

Þá sé mikilvægt að hægja á sér í umferðinni þar sem svo háttar til að vatnselgur er á götum og leitast við að aka utan vatnsrása því ella er hætta á að bílar fljóti upp og ökumaður missi stjórnina. Þá geta aðstæður á morgun jafnframt verið varasamar fyrir bæði gangandi og hjólandi og nauðsynlegt fyrir alla að fara varlega.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert