55 skjálftar í Bárðarbungu

Enginn jarðskjálfti hefur mælst yfir fjórum stigum í Bárðarbungu síðan í gærmorgun, en stærsti skjálftinn sem hefur mælst var 3,6 að stærð. Um 10 skjálftar mældust sem voru á þrír til fjórir að stærð.

Alls hafa mælst um 55 skjálftar frá kl. 10 í gærmorgun.

Í kvikuganginum hafa fáir og smáir skjálftar mælst á tímabilinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert