Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust tvær tilkynningar um innbrot og þjófnað í Vogahverfi í Reykjavík í gær. Í báðum tilvikum var gluggi spenntur upp, farið inn í húsin og skartgripum stolið.
Að sögn lögreglu barst fyrri tilkynningin kl. 18 í gær og sú seinni kl. 19:29.
Þá varð umferðaróhapp á Miklubraut til móts við Kringluna um hálftólf í gærkvöldi. Lögreglan segir að ung kona sé grunuð um akstur bifreiðar undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Konan var vistuð í fangageymslu þar til hægt verður að ræða við hana.