Landsmenn sólgnir í hangikjöt

„Hangikjöt á diskinn minn,“ segja landsmenn í könnun MMR.
„Hangikjöt á diskinn minn,“ segja landsmenn í könnun MMR. mbl.is/Sverrir

Sjö af hverjum tíu Íslendingum borða hangikjöt sem aðalrétt á jóladag á meðan 9,4% landsmanna ætla að borða hamborgarhrygg sem aðalrétt. Þeir sem styðja Framsóknarflokkinn eru líklegri en aðrir til að borða hangikjöt á jóladag en aðrir.

Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR, en hún var framkvæmd dagana 9. desember til 16. desember 2014. Heildarfjöldi svarenda var 1.097 einstaklingar, 18 ára og eldri.

Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 71,4% ætla að borða hangikjöt á jóladag, 9,4% sögðust ætla að borða hamborgarhrygg, 4,2% sögðust ætla að borða kalkún, 3,8% sögðust ætla að borða annað lambakjöt en hangikjöt og 11,1% sögðust ætla að borða eitthvað annað en fyrrgreinda kosti, að því er MMR segir.

Spurt var: „Hvað er líklegast að þú munir borða sem aðalrétt á jóladag?“ Svarmöguleikar voru: Fiskur/sjávarfang, gæs, grænmetisfæði, hangikjöt, hamborgarhryggur, hreindýrakjöt, kalkúnn, kjúklingur, lambakjöt (annað en hangikjöt), nautakjöt, rjúpur, svínakjöt (annað en hamborgarhryggur), önd, annað kjöt, annað og veit ekki/vil ekki svara.

Samtals tóku 96,2% afstöðu til spurningarinnar.

„Vinsældir hangikjöts virðast aukast með aldrinum. Af þeim sem tóku afstöðu og tilheyrðu elsta aldurshópnum (68 ára og eldri) sögðust 77,4% ætla að borða hamborgarhrygg sem aðalrétt á jóladag, borið saman við 64,9% þeirra sem tilheyrðu yngsta aldurshópnum (18-29 ára).

Þeir sem styðja Framsóknarflokkinn eru líklegri en aðrir til að borða hangikjöt á jóladag en aðrir. Af þeim sem tóku afstöðu og sögðust styðja Framsóknarflokkinn sögðust 84,7% ætla að borða hangikjöt sem aðalrétt á jóladag, borið saman við 70% Pírata,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert