Ökumenn fari varlega

Svona er umhorfs á Mosfellsheiði, séð úr vefmyndavél Vegagerðarinnar.
Svona er umhorfs á Mosfellsheiði, séð úr vefmyndavél Vegagerðarinnar. mynd/Vegagerðin

Þæfingsfærð er á Suðurlandsvegi og á Kjalarnesi að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Tvö umferðaróhöpp hafa orðið á Kjalarnesi í dag sem rekja má til veðurs, annars vegar hafnaði bifreið utan vegar og hins vegar varð bílvelta. Engan sakaði.

Lögreglan segir að umferð á höfuðborgarsvæðinu hafi gengið þokkalega en biður ökumenn að fara varlega á Kjalarnesi og á Suðurlandsvegi, þar sé skafrenningur og blindhríð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert