Í samstarfi við íslenska seiðkonu

Frá tískusýningu í Hafnarhúsinu.
Frá tískusýningu í Hafnarhúsinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fatahönnuðurinn Hildur Yeoman kynnir nýja línu sem ber nafnið Yulia og er innblásin af ömmu hennar, Juliu.

„Ég nálgast hönnunina út frá teikningunum mínum og spinn sögur sem skapa heilan heim af vörum. Í byrjun sköpunarferilsins vinn ég oft með músu sem fyrirmynd í vinnuferlinu. Músurnar eru allar þær sterku konur sem ég hef í kringum mig en ég er svo lánsöm að vera umkringd skapandi, sterkum og áhugaverðum karakterum,“ segir Hildur Yeoman sem hannaði línuna Yuliu. Hildur segir kveikjuna að línunni hafa verið sterkar konur og persónur sem brjótast gegn þeim borgaralegu gildum sem samfélagið setur okkur og nefnir þá sérstaklega ömmu sína Juliu.

„Amma Julia var húsmóðir sem bjó í New Jersey en stakk af frá fjölskyldunni sinni til að ferðast um Bandaríkin með mótorhjólagengi. Ég hitti hana ekki oft þegar ég var lítil enda bjó hún í Bandaríkjunum en þegar ég hitti hana þá var ég alltaf logandi hrædd við hana og fannst hún alltaf vera hálfgerð norn. Mér hefur seinna verið sagt að hún hafi verið rammgöldrótt týpa með ungverskt sígaunablóð í æðum.“

Línan samanstendur af fallegum og kvenlegum flíkum með áherslu á munstur sem unnin eru eftir ljósmyndum og teikningum eftir Hildi sjálfa.

Í línunni takast á andstæður í efnavali. Það eru annars vegar prentuðu efnin sem eru úr mjúkum þægilegum efnum eins og silki, bómull eða viscose. „Hins vegar er ég að vinna með óhefðbundnari efni eins og nótagarn sem ég prjóna flíkur úr sem ég vinn svo lengra með að bródera í þær. Skartið er heklað úr nótagarni og bróderað með náttúrusteinum sem hafa heilandi orku.“

Hildur frumsýnir nýja línu á hönnunarmars 2015, þar sem hún kynnir sér galdra frekar og mun vinna í samstarfi við íslenska seiðkonu.

„Mér hlotnaðist sá heiður á dögunum að hljóta styrk frá Hönnunarsjóði Auroru, styrkurinn er til frekari vöruþróunar sem mun koma sér vel við undirbúning þeirrar línu.“

Yulia er nú fáanleg í versluninni Kiosk á Laugavegi.

Hildur Yeoman hönnuður.
Hildur Yeoman hönnuður. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert