Sluppu án alvarlegra meiðsla

Umferðaróhappið var um klukkan níu í kvöld. Hluta Hringbrautar var …
Umferðaróhappið var um klukkan níu í kvöld. Hluta Hringbrautar var lokað á meðan lögregla og sjúkralið athöfnuðu sig. mbl.is/Golli

Enginn slasaðist alvarlega í bílveltu sem varð á Hringbraut um kl. 21 í kvöld. Ökumaður og farþegi voru í fólksbifreiðinni sem valt og fóru lögregla og sjúkralið á vettvang. Að sögn varðstjóra hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var hvorugur þeirra fluttur á slysadeild.

Tildrög slyssins eru óljós en bifreiðin var að aka austur eftir Hringbraut í Reykjavík við gatnamótin við Vatnsmýrarveg. 

Málið er í rannsókn.

Bílvelta á Hringbraut

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert