Þrír fluttir á slysadeild

Áreksturinn varð nokkuð harður.
Áreksturinn varð nokkuð harður. Ljósmynd/Kristján Orri Jóhannsson

Þrír voru fluttir á slysadeild í dag eftir nokkuð harðan árekstur á Miklubraut í Reykjavík.

Áreksturinn átti sér stað á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. Annar bíllinn endaði utan vegar og uppi á handriði við götuna.

Þrír sjúkrabílar og einn dælubíll frá slökkviliðinu voru sendir á staðinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert