93 þúsund manns ætla að borða skötu

Það er misjafn smekkur manna að minnsta kosti þegar kemur …
Það er misjafn smekkur manna að minnsta kosti þegar kemur að skötu. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

MMR kannaði hvort fólk ætlaði að borða skötu á Þorláksmessu þessi jólin. Heldur færri sögðust ætla að borða skötu á Þorláksmessu í ár en í fyrra.

38,0% ætla að borða skötu á Þorláksmessu samkvæmt könnun MMR borið saman við 42,1% í fyrra. Niðurstöðurnar benda til þess yfir 93.000 Íslendingar 18 ára og eldri (sem eru alls ríflega 245 þúsund) ætli að borða skötu á Þorláksmessu. Álykta má að skammtarnir verði þó nokkuð fleiri þar sem að fólk í öðrum aldurshópum borðar að sjálfsögðu einnig skötu.

Karlar voru líklegri til að segjast ætla að borða skötu á Þorláksmessu en konur. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 44,3% karla ætla að borða skötu á Þorláksmessu, borið saman við 31,5% kvenna.

Yngra fólk var ólíklegra til að segjast ætla að borða skötu en eldra fólk. Af þeim sem tóku afstöðu og tilheyrðu yngsta aldurshópnum (18-29 ára) sögðust 21,3% ætla að borða skötu á Þorláksmessu, borið saman við 55,6% í aldurshópnum 68 ára og eldri.

Fólk á landsbyggðinni var líklegra til að segjast ætla að borða skötu en fólk á höfuðborgarsvæðinu. Af þeim sem tóku afstöðu og voru búsett á landsbyggðinni sögðust 43,9% ætla að borða skötu á Þorláksmessu, borið saman við 34,2% íbúa á höfuðborgarsvæðinu.

Vinstri grænir ólíklegastir til að borða skötu

Þeir sem studdu Vinstri-græn voru ólíklegri en stuðningsfólk annarra stjórnmálaflokka til að segjast ætla að borða skötu á Þorláksmessu. Af þeim sem tóku afstöðu og kváðust styðja Vinstri-græn sögðust 21,3% ætla að borða skötu á Þorláksmessu, borið saman við 49,4% þeirra sem kváðust styðja Framsóknarflokkinn.

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar18 ára og eldri valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1097 einstaklingar
Dagsetning framkvæmdar: 9. til 16. desember 2014

Eldri kannanir sama efnis:
2013 desember: MMR könnun: Ætlar fólk að borða skötu á Þorláksmessu
2012 desember: MMR könnun: Ætlar fólk að borða skötu á Þorláksmessu
2011 desember: MMR könnun: Ætlar fólk að borða skötu á Þorláksmessu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert